Ég um mig frá mér til .... til hvers ??

Góða kvöldið hér Smile

Ekki skamma mig mikið fyrir þessa ótrúlegu bloggleti mína, ég ákvað að taka smá pásu en nú er ég komin aftur. Smile Mig langaði bara að lofa ykkur að vita að skottið er í fínum gír InLove

Ég er bara ágæt þessa daganna, ég sveiflast eins og áður og á eflaust eftir að gera það lengi. Hræðslan er alltaf til staðar, ég svo sem veit að ég stjórna engu en það er ekki þar með sagt að hugurinn hlýði mér alltaf, ég er oft komin allt of langt í að áætla hvað verði næst..... svona er ég bara ....Woundering

Ég hef mikið verið að hugsa seinustu vikur, hef verið að reyna að taka til í mér. Það gengur svona svona...... ég er svo ferleg með að standa ekki upp fyrir sjálfri mér, sit svo eftir með sár og lem sjálfa mig niður fyrir að vera ekki betri við mig.Undecided  Ég er allt of gjörn á að lofa fólki að koma illa fram við mig .... oft bara til að halda friðinn. Þessu er ég að reyna að breyta, það gengur hægt, en góðir hlutir gerast hægt.Grin Ég veit að ég sjálf er sú eina sem get látið mér líða vel, það þarf ég að muna. Ég þarf að læra að ég á rétt á að vera ég. Ef fólk getur ekki tekið mér þannig þá hefur það val um að vera í kring um mig eða ekki, alveg eins og að ég hef val um að umgangast þá sem ég vil.Grin

Ég hef verið að reyna að hreyfa mig meira, fer í göngu flesta morgna, mikið betra að gera það heldur en að hanga heima og gera ekkert, ég er hvort eð er vöknuð, get ekki leigið lengur en 4-5 tíma með góðu, bakið er að gera mig brjálaða á nóttunni og það fer í skapið á mér. Stundum dett ég niður í erfiðar hugsanir, sérlega þegar heilsan er léleg, þess vegna skiptir miklu máli fyrir mig að hugsa vel um mig. Ég get ekki ætlast til þess að aðrir séu góðir við mig ef ég er það ekki sjálf.Cool

Ég er eitthvað leið, hef verið það í nokkurn tíma en vona að þetta lagist með hækkandi sól :) Ég elska vorið, elska að horfa á allt lifna við, vona að ég lifni við um leið. Heart

Ég nenni ekki að hafa þetta lengra, líður eins og ég hafi ekkert jákvætt um mig að seigja þessa stundina og þá er bara betra að hafa þetta stutt.

 

Knús á ykkur öll Kissing 


Væntumþikja eða .....

Góða kvöldið hér.

Ég ætla bara að lofa ykkur að vita að daman er komin á góða staðin aftur.... hjúkk

Ég ætla ekki að hafa þetta langt vil bara að þið fáið fréttir. Ég fer í saumatöku á morgun og á vonandi eftir að geta skrifað betur eftir það ... það er erfitt að pikka með vinstri híhíhí

Ég nenni ekki að vera mamma fíkilsins núna, er einfaldlega of þreytt til þess... reyni að setja hana til hliðar og gera eitthvað fyrir sjálfa mig, tími til kominn. Ég fór á fund í Lundi í gær og hafði gott af því að fá að blása þar, leið mikið betur á eftir. Brotnaði illa um helgina, í laumi auðvitað, það má enginn sjá hvað mér líður illa. En ég var fljót upp núna ef upp ætti að kalla, hef verið aum síðan allt gekk á fyrir jólin og hef ekki náð að vinna almennilega í því. Það stendur til bóta, er að spá í að koma mér til að ræða við prestinn eins og mér hefur margoft verið bent á, ég þarf að losa um sorgina í hjartanu. Samt hef ég ekki viljað fara til prestsins, hefur einhvernvegin þótt að aðrir ættu að hafa hann, en það er satt sem mér er bent á að ég verð að losa um sorgina...... því í mínu tilfelli  hefur sorgarferlið verið mjög langt.

Jæja er alveg búin í fingri vinstri handar við þetta pikk hér, læt þetta duga í bili og vona að þið hafið það gott.

Knús á alla Kissing 


Vont símtal....

Góða kvöldið hér...

Ég fékk VONT símtal í dag.... farin út  Frown ... ég get alveg verið heiðarleg og sagt að það fyrsta sem ég hugsaði þegar röddin sagði mér að kuldinn hefði verið svo mikill .... nú er komið að því, hún hefur orðið úti, hann er að finna leið til að seigja mér það.... hjartað tók auka slag og ég skalf....  Sem betur fer var þetta ekki raunin, hún var á staðnum og í lagi.... ég talaði smá við manninn, man varla um hvað...

Svo kom reiðin.... ég er svo reið, svo sár..... hvað nú??? Hvernig verður framhaldið ?? Hvað með afleiðingarnar.. ætli hún spái í það ?? Af hverju getur hún ekki tekið leiðsögn ?? Af hverju get ég ekkert gert ?? Af hverju þetta og af hverju hitt ???..... Það er ofboðslega vont að vera svona reiður, vera svona vonlaus og sár.... það er vont að hafa þessar tilfinningar til hennar sem ég hef núna. Ég er bara svo búin.... ég er að upplifa einhverjar tilfinningar til hennar sem ég hef ekki fundið áður, þær meiða mig´... af hverju get ég ekki bara átt venjulegt líf.... mér líður stundum eins og ég hafi ekki hjarta, er að berja mig niður fyrir mínar hugsanir....

Er þetta ekki bara eðlilegt ?? Er ekki eðlilegt að maður fái nóg.. þó svo að "barnið" mitt eigi í hlut ?? Ég held að ég sé ekki að bilast, ég held að sálin sé bara svo brotin og vannærð núna... það er mitt að fylla á hana aftur en í augnablikinu vantar mig bara að fá að gráta og reyna að vinna á sorginni sem ég næ ekki að hleypa út.... Set upp grímuna og brosi þegar það á við. Þvílíkt fals. Ég tek allt svo nærri mér og reyni svo að særa ekki aðra, gerði það í dag, því miður og mér líður ömurlega með það. Það er vont þegar maður særir fólk sem maður elskar, ég framkvæmdi áður en ég hugsaði.

Ég þrái svo að fá frið, frið á sálinni og frið í hjartanu, frið í huganum sem er kominn á hraðferð núna. Ég þrái að vera ekki endalaust hrædd. Þrái að vakna einn góðan dag og sjá þá að seinustu 6ár voru bara vondur draumur um Viktoríu mína.... sumir draumar rætast !!!!

Knús á alla....


Jól í skugga sorgar...

Góðan daginn hér Grin

Héðan er allt við það sama, hef ekkert heyrt í Viktoríu minni en ætla að bjalla til hennar um jólin.

Ég er sorgmædd. Það er erfið staða að geta ekki haft hana hér um jólin, ég vona svo innilega að hún skilji það, þetta er reglulega sárt. Ég bara get ekki hugsað mér að eiða jólunum í spennu, óöryggi og hræðslu. Fannar minn á líka skilið að eiga jólin með mig heila. Þessi ákvörðun mín tekur samt verulega á, ég elska þetta skott mitt svo heitt, hún veit það. Ég er þó sáttari eftir að ég vissi að hún yrði á góðu heimili um jólin, ég þakka fyrir það. Ég er búin að koma til hennar pökkum og fer með 2 í viðbót í dag, veit að henni þykir vænt um það. Hún á að mæta aftur á góða staðin á annan í jólum og ég vona svo innilega að hún geri það. Það er sú dýrmætasta jólagjöf sem ég gæti fengið.

......... Sniðugt.... á meðan ég var að blogga hringdi þessi elska.. henni líður vel og er á góðum stað þar sem er vel hlúð að henni :) Það var yndislegt að heyra í henni Heart Við ætlum svo að tala saman aftur í kvöld....

Elsku vinir og ættingjar. Ég sendi ykkur mínar innilegustu jólakveðjur, megi þið öll eiga góð og kærleiksrík jól.

Knús á ykkur öll, BetaKissing 


Smá friður....

Góðan daginn hér Grin

Þökk sé góðu fólki þá hef ég betri fréttir. Heart Skottið mitt er komin á góðan stað. Hún er svo lánsöm að hafa fengið enn eitt tækifærið, nú vonum við enn og aftur. Hún skilaði sér á þriðjudagskvöld og þáði hjálp. Yndislegar manneskjur tóku hana að sér og leiðbeindu henni áfram, svo bauðst henni að fara í meðferð á yndislegan stað hjá góðu fólki og hún valdi það sem betur fer. Ég hef ekkert hitt hana eða heyrt í henni, ég bara er ekki tilbúin strax, en ég fæ reglulega fréttir af henni og hingað til hafa þær verið góðar og ég bið til guðs að svo verði áfram. Ég hef náð að sofa seinustu tvær nætur og er farin að halda niðri matnum, þarf að ná til baka þessum 4,4 kílóum sem fóru núna. Ég fór alveg á hliðina í þetta sinn, veit ekki af hverju, kanski var ég með of miklar væntingar því mér þótti þetta ganga svo vel, og það var svo gott hljóðið í henni, henni virtist líða svo vel.... en svona er þessi fjandans fíkn víst.....

Nú er ekkert sem ég get gert nema biðja fyrir henni og vona það besta, ef hún gefst aftur upp er það gatan sem tekur við, það er ömurlegt en þannig er það bara. Ég er hætt að taka þátt í þessu. Ég er hér ef hún er edrú, hún veit það. Nú bara verð ég að setja mörk og standa við þau, annars verður ekkert eftir af mér.

Jólin verða frábær hér, ég er ákveðin í því. Ingimar er kominn og Fannar minn kemur eftir helgina. Ég held svei mér þá að ég hlakki smá til jólanna.... ég hef lítið framkvæmt, hef bara ráfað hér um og snúist um sjálfa mig, ekki getað skipulagt mig eða fest hugann við neitt. Nú er breyting á ... búin að versla gjafirnar, pakka inn, senda það sem þarf og skreyta eitthvað.. sko mig allt að koma....

Ég þarf að finna leið til að losa um sársaukann sem enn situr í hjartanu, veit ekki alvag hvernig ég á að fara að því.... vona bara að hann fjari út með betri dögum, þetta hlýtur að koma.

Farið vel með ykkur og njótid lífsins,

Knús á alla Kissing 


Tóm á sálinni..

Góðan daginn hér.

Héðan er ekkert nýtt að frétta, hef ekki hugmynd um barnið mitt, það er vont. Það eina sem ég veit er það sem hún skrifaði við seinustu færsluna mína. Vona bara að henni líði vel.Frown

Mér hefur gengið afar illa að aftengja núna, kannski þessi árstími, ég veit það ekki. Ég er þó að reyna, er að sætta mig við að hún verður ekki hér um jólin, það er það eina sem ég er ákveðin í. Ég ætla að eiga góð jól, sama hvað.

Ég er að reyna að hafa mig af stað í að gera smá jólalegt hér, þá rifjuðust auðvitað upp minningarnar frá seinasta ári þegar hún var hér, glöð kát edrú og svo falleg, við dunduðum okkur hér saman við að baka og skreyta, það var svo yndislegt. Hún flögraði hér um með rauðar slaufur og skreytti og það var svo fallegt hjá henni. Þessar slaufur fara ekki upp núna, ég á bara erfitt með að horfa á þær. Furðulegt hvernig manni getur liðið....

Ég er að undirbúa herbergið fyrir guttana mína, annar kemur á morgun og hinn eftir helginaHeart Það verður yndislegt að hafa þá hér um jólin og sjá þessa jólasveina fulla af kæti og gleði.... svo á ég von á að ég verði tekin fyrir og strítt út í eitt, þeim leiðist það ekki Halo

Jólagjafirnar eru komnar á borðið og verður pakkað í dag, það kemur mér vonandi í gírinn.... sárt var þó að fara með gjafirnar hennar Viktoríu í geymsluna, en það var líka vont að horfa á þær og vita að hún yrði ekki hér til að taka við þeim, en svona er lífið, ég verð bara að sætta mig við það.

Nú ætla ég að leggja mig alla fram við að hugsa um mig og strákana mína, mömmu og pabba. Við erum öll afskaplega leið yfir ástandinu. En við verðum að halda áfram, annað er ekki í boði. Nú er bara nóg komið af þessari ömurlegu vanlíðan sem ég hef verið í seinustu viku, ég er orðin þreytt á að vera leið og brotin með kökk í hálsinum, svefnlaus og hrædd alla daga......

Takk fyrir allar kveðjurnar kæru vinir, það styrkir mig mikið að lesa kommentin ykkar, það er gott að geta komið hér og kastað úr sálinni, mér líður alltaf betur á eftir.

Knús og kærleikur héðan til ykkar Kissing 


ömurlegar fréttir núna :(

Góða kvöldið hér.

Nú hef ég því miður ekki góðar fréttir, Viktoría er fallin enn og aftur. Nú er aftur tekin við þessi skelfilegi tími hræðslu og ótta..... hvar endar þetta núna ??? Guð ég er svo hrædd, get ekki sofið, hugsa bara um barnið mitt og græt .... Ég er svo ekki tilbúin í enn eina rússíbanaferðina enn... ég get ekki meir, orkan er engin.... enda hvað get ég svo sem gert, ég hef reynt allt og hingað til hefur það lítið virkað... það eina sem ég veit er að ég ætla að reyna að eiga góð jól með strákunum mínum og ég ætla ekki að leyfa fíklinum að skemma það...... hún velur neysluna, það er ekki í boði hér, þannig að ég reikna með að gatan verði hennar samastaður um jólin... ömurlegt en satt.... nú er ég búin að fá nóg... Hún veit hvað hún þarf að gera og vonandi gerir hún það áður en það verður of seint..... með þessu framhaldi endar þetta bara á einn veg.... þann veg vil ég ekki sjá á eftir henni en ´óttast það mest að sá dagur komi ef hún heldur áfram þessu líferni sínu..... Það eina sem ég veit þessa stundina er að mér líður hræðilega, hræðslan og óttinn eru að keyra mig í kaf.....

Ætla að biðja um frið í bænum mínum, henni og mér til handa.

Knús á allaKissing 


Ertu aflögufær ????

Góðan saginn hér Grin

Það er allt mjög gott að frétta af Viktoríu minni Heart Hún lætur afar vel af sér og er mjög gott að heyra í henni þessa dagana Grin Ég hitti hana um seinustu helgi og húnn leit frábærlega út. Hún kom til okkar í nokkra tíma því við fórum í jarðaför og hún vildi fá að kveðja þá yndislegu konu líka og var auðsótt mál að fá leifi á Krýsuvík til þess.

Tvær vinkonur mínar komu með frábæra hugmynd eftir að ég var að tala um hvað það væri margt sem vantar á Krýsuvík, nú þegar allir eru að taka til í geymslum og skápum langar mig að biðja ykkur að hugsa til þeirra sem minna meiga sín, sumir jafnvel eiga bara fötin sem þeir standa í... ég er að safna saman dóti sem fólk er hætt að nota, t.d. skóm og fötum og allri afþreyingu, t.d. bækur, spil, DVD, handavinna, og hlutir til að vinna hana, rúmföt, lök (90-120 cm) og bara allt sem ykkur dettur í hug sem þið eruð ekki að nota og getur nýst þessum einstaklingum eins og minni skottu sem eru svo mikið að reyna..... ég hef fengið fín viðbrögð og er að safna í sarpinn Grin ég kem og sæki dótið og kem því til skila. Endilega ef þú ert aflögufær hafðu samband við mig í 863 2414. Takk innilega Heart

Læt þetta duga í bili....

Knús á alla Kissing


Góðir dagar.

Góða kvöldið hér Grin

Hér er bara allt gott að frétta Heart Skottið mitt er enn á Krýsuvík og virðist nokkuð brött og sátt, það er svo gott. Það tóku við nokkrir tilfinningaþrungnir dagar eftir að ég bloggaði seinast, ég var skíthrædd um að hún gæfist upp en sem betur fer er hún enn inni. Ég hef talað við hana í síma nokkrum sinnum og það er gott hljóð í henni. Hún er þokkalega róleg og á jörðinni og það róar migHeart

Ég er sjálf í nokkuð góðum gír, heilsan bara með besta móti, allar þessar rannsóknir og tilraunir virðast loksins vera að skila einhverjum árangri núna og 10 daga lyfjaskammturinn sem kostaði mig tæplega 20.000 virðist virka enn sem komið er og verður svo vonandi áfram Grin Ég hef bara reynt að fara vel með mig og hugsað um að láta mér líða eins vel og hægt er, það er góð byrjun Halo

Fannar minn kom til mín um daginn og það var frábært að sjá hann, það hjálpaði mér mikið á þessum erfiðu dögum sem tóku við eftir að ég fór með Viktoríu mína á Krýsuvík að fá hann heim, hann er nú ekki kröfuharður þessi elska og var ekkert að kippa sér upp við að mamma hans var alveg búin á líkama og sál og tók þessu heilsuleysi með miklu jafnaðargeði. Hann fór svo til afa og ömmu í 2 daga og átti góðan tíma í borginni hjá þeim. Það styttist í að hann komi aftur, hann fer í jólafrí um miðjan des og þá ætla ég að vera geðveikt hress Whistling    

Það hefur oft bitnað á þessari elsku allt þetta basl á systir hans, hann hefur staðið sig eins og HETJA. Mér var snemma ráðlagt að fela ekkert fyrir honum hvernig ástandið væri, hann myndi bara frétta það annarsstaðar og ekki væri það betra, það hjálpar líka að geta rætt málin við hann og svarað þeim spurningum sem hann hefur. Það er hægt að ræða og seigja hlutina á svo margan hátt, aðgát skal höfð í nærveru sálar. Hann og Viktoría eru mjög tengd og hann hefur oft átt mjög erfitt og tók ég fljótt eftir að hegðan hans í skólanum stjórnaðist af miklu leiti af ástandinu hverju sinni. Það hefði verið gott ef skólinn hefði haft meiri áhuga á hvað var að gerast í hans lífi stundum, þá hefðu viðbrögðin sennilega oft verið önnur en þau voru, það sem betur fer lagaðist til muna seinasta vetur og þá leið honum líka mun betur. Auðvitað ætla ég ekki að kenna skólanum um allt, hann átti eitt og annað sjálfur, ég hefði bara viljað sjá að skólinn hefði einhver úrræði fyrir börn í hans stöðu því hann er ekki fyrsta barnið og svo sannarlega ekki það síðasta sem standa í þessum sporum. Ég tek það aftur fram að ég kenni engum um, ég bara vona að betur verði hlúð að þeim sem á eftir koma....... það er oft mikið tilfinningarót hjá systkinum fíkla, heimilið brotið og foreldrarnir fárveikir af áhyggjum og meðvirkni með fíklinum og þá oftar en ekki reynir systkinið að bæta ekki á áhyggjur foreldra og losar um vanlíðanina annarsstaðar. t.d. í skólanum, þess vegna skiptir miklu að systkinið fái ekki viðbrögð sem valda meiri vanlíðan, t.d. á kennari ekki að leifa sér að bera barnið saman við fíkilinn þó hegðanin sé ekki til sóma, "þú verður eins og systir þín"  ... þetta fékk minn sonur að heyra frá kennara og þetta olli honum mikilli vanlíðan. Þarna á fullorðni aðilinn að vita betur og jafnvel að afla sér upplýsinga hjá foreldrum um hver staðan sé á þeim tíma. Samvinna heimilis og skóla.

Jæja þá er ég búin að rausa nóg í kvöld, það er gott að koma frá sér einhverju gömlu sem hefur truflað mann í marga mánuði, nú er ég búin að því og líður betur með það....

Það er svo sem ekki mikið meira að seigja frá, ég reyni að taka einn dag í einu, fer í Lund og huga að mér og mínum, þannig líður mér best.

Ætla að láta þetta duga í bili......

Þar til næst, KNÚS á alla Kissing


Furðulegur dagur.

Góða kvöldið hér Grin

Jæja þá er skottið mitt komin á Krýsuvík Heart Það var tekið mjög vel á móti henni sem betur fer því hún var ekkert smá kvíðin. Ég var með henni í smá tíma og okkur leist bara vel á staðinn og auðvitað fólkið líka.

Ég er tætt... þessi dagur hefur verið mjög furðulegur. Ég svaf lítið og illa í nótt og var komin snemma á fætur til að keyra Viktoríu mína.  Ég fór frá Krýsuvík nokkuð sátt, ekki annað hægt. Ég var ekki búin að keyra lengi þegar ég bara brotnaði.... grét og grét og bara gat ekki hætt. Það var ekkert sérstakt sem gerðist, ég bara bugaðist. Það er svo fáránlegt að vera vongóð og glöð en samt svo sorgmædd og hrædd á sama tíma.. furðuleg líðan. Ég bara lagði bílnum og leifði mér að gráta og vitið að það var bara gott, gott að hleypa út öllum þessum tilfinningum og sorg alein þar sem enginn sá mig.... mér varð léttara á eftir. Ég held að ég hafi bugast af þreytu, hef lítið hvílst til þess að gera síðustu vikur og mánuði. Veikindin mín og áhyggjurnar af Viktoríu minni taka bara meira frá mér en ég vil viðurkenna, þannig er það bara. Ég hef bara ekki haft orku til eins eða neins seinustu daga þó ég hefði viljað. Þetta sýnir mér að ég er mannleg, hef stundum velt því fyrir mér upp á síðkastið hvort ég sé vélmenni, hefur fundist svo erfitt að sýna tilfinningar og gefa af mér og það er svo ólíkt mér. Ég skil hvað var að gerast, ég hjúpaði mig brynju til að vera ekki særð. Ekki að það hafi neinn verið að reyna það, ég er bara svo oft búin að upplifa að líða vel og svo kemur skellur á eftir og ég var bara ekki tilbúin að takast á við það. Ég þrái bara svo heitt að Viktoría mín nái sér og að henni fari að líða vel, ég gæfi allt fyrir það.

Ég vildi bara láta ykkur vita að Viktoría mín væri komin inn. Ég er svo andlaus og þreitt og ætla því ekki að hafa þetta lengra en mig langar svo mikið að biðja ykkur að hafa hana í bænum ykkar og senda henni styrk.

Knús á alla Kissing


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband